13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 895 í B-deild Alþingistíðinda. (802)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Ég hafði ekki tækifæri til þess að sjá þessa brtt., áður en hún var lögð hér fram. Og eins og kunnugt er, hafa ekki farið fram umr. um þetta mál við þessa umr., nema útvarpsumr., svo að það hefur ekki verið hægt að ræða þessa brtt. hér í hv. d. En ég get ímyndað mér, að það geti verið stundum nauðsynlegt að gera það, sem í fyrri liðnum segir. En síðari liðurinn, ef samþ. væri, hygg ég, að gæti ruglað gjaldeyrisskiptingunni milli bankanna. Og ég hef ekki getað gert mér nægilega grein fyrir, hvaða áhrif þetta mundi hafa. Get ég ekki greitt atkv. um þetta hér í hv. d. Ég mun athuga við meðferð málsins í hv. Ed., hvað rétt þykir í þessu efni. Ég greiði því ekki atkv.