21.05.1947
Efri deild: 139. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 915 í B-deild Alþingistíðinda. (818)
195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit
Frsm. meiri hl. (Kristinn Guðmundsson):
Herra forseti. Mér fannst hv. þm. Barð. allgustmikill núna fyrir matinn yfir því, að ég hefði ekki gefið honum nógu skýr svör við því, sem hann spurði, hvort n. væri kunnugt um, að Útvegsbankinn hafi greitt 500 þús. kr. fyrir gjaldeyri frá Landsbankanum. Mér fannst ég svara honum þessu nokkuð. Hann veit, að ég er nýkominn í n., en ég ber það mikið traust til formanns hennar, að ég býst ekki við, að n. hefði stungið þessu undir stól, ef hún hefði haft einhverjar upplýsingar um þetta. Ég veit ekki, hvernig hv. þm. Barð. ætlast til, að fjhn. fari að skipta sér af málum. sem ekki eru til hennar komin. Mér er ekki kunnugt um, að nokkur kvörtun frá bönkunum hafi legið fyrir n. Það má kannske segja, að einkennilegt sé, að þessi hv. þm. beri hag annars bankans fyrir brjósti, en vilji láta hag ríkisbankans sitja á hakanum. Hann spurði, hvort n. vildi ekki taka till. sína aftur. Ég skil ekki, hvers vegna hann vill. að n. taki aftur till. sína. Í frv. er gert ráð fyrir, að Útvegsbankinn fái 28% af gjaldeyrinum, en við leggjum til, að það verði 331/3%. Ég vana, að ég hafi nú svarað þessu nægilega, skil ekkert í þeim norðangusti, sem blés frá þessum fyrrverandi samsýslunga mínum. Annars mun ég halda fast við það að samþykkja þessa brtt. n.