18.12.1946
Efri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (85)

45. mál, menntaskólar

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson):

Herra forseti. Menntmn. hefur athugað þetta frv. Að vísu var hún ekki öll á fundi. Þar voru hvorki hv. þm. Seyðf. né hv. 2. þm. Árn. viðstaddir, og þess vegna hafa þeir ekki skrifað undir nál.. en sá hluti n., sem viðstaddur var, mælir með, að frv. verði samþ. óbreytt. Það hefur áður verið gerð grein fyrir tildrögum þess, að þetta mál er á ferðinni, og sé ég ekki ástæðu til að fara að endurtaka það, en vil láta nægja, a.m.k. að svo stöddu, að skýra frá þessu áliti n.