21.02.1947
Efri deild: 78. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 983 í B-deild Alþingistíðinda. (950)

35. mál, matsveina- og veitingaþjónaskóli

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Með því að frv. þessu hefur verið gerbreytt í Nd., þá vil ég óska þess, að málið verði tekið af dagskrá og sjútvn. gefinn kostur á að athuga það á ný, áður en gengið er til atkv. um það hér.