18.12.1946
Efri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (97)

45. mál, menntaskólar

Jóhann Jósefsson:

Þar sem það er yfirlýst við umr. þessa máls, að rektor menntaskólans hefur ekki látið í té nauðsynlegar upplýsingar viðvíkjandi launagreiðslum við skólann, og upplýst er, að n., sem fjallað hefur um málið, hefur látið undir höfuð leggjast að afla upplýsinga um málið. treysti ég mér ekki til að greiða atkv. með því og segi því nei.