23.03.1948
Neðri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í B-deild Alþingistíðinda. (1059)

188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Á fyrra stigi þessa máls hef ég látið í ljós skoðun mína og að ég teldi skakkt að hafa nokkurn forgangsrétt í þessu efni. Nú er hins vegar búið að ganga þannig fram í þessu máli, að samþykkt þessarar till. gæti orðið til þess, að þeim samtökum yrði stefnt gegn því, sem ég gerði. Ég er ekki með þessu og segi þess vegna nei.