15.12.1947
Efri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (1402)

103. mál, innflutningur búfjár

Bernharð Stefánsson:

Þar sem þetta frv. hvetur engan veginn til aukins innflutnings, heldur þvert á móti setur frekari hömlur við innflutningi búfjár en verið hefur, þá sé ég ekki ástæðu til að vísa þessu frv. frá út af fyrir sig, þó að ég sé efni till. að öðru leyti samþykkur, og segi því nei.