23.01.1948
Efri deild: 46. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (1422)

106. mál, skráning skipa

Gísli Jónsson:

Þessu máli var vísað til sjútvn. 15. des. eða rétt fyrir þingfrestun, en eins og kunnugt er, kom þing ekki saman aftur fyrr en 20. þ. m. Síðan hefur sjútvn. haldið 2 fundi, og á þeim síðari var þetta mál tekið fyrir, en vegna vissra ákvæða í frv. þarf það sérstakrar athugunar við, sem ekki er hægt að gera, fyrr en fengnar hafa verið ýmsar upplýsingar. Af þessum ástæðum óska ég sem form. n., að málið verði nú tekið út af dagskrá og ekki tekið á dagskrá, fyrr en nefndin lætur frá sér heyra.