29.01.1948
Neðri deild: 48. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1480)

45. mál, búfjárrækt

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Landbn. flytur hér nokkrar hreyt. við frv. það, sem afgr. var til 3. umr. nokkru fyrir hátíðar. Þessar brtt. eru á þskj. 280, og er þar ekki um efnisbreyt.. að ræða. Það komu fram nokkrar aths. við málið, sérstaklega á nokkrum gr. frv., og taldi n. þess vegna sjálfsagt að taka frv. til nýrrar athugunar eftir 2. umr. Þær brtt., sem hér liggja fyrir, eru niðurstaðan af þeim athugunum. Hér er um að ræða tvær breyt. á greinum, vegna þess að gr. voru ekki í fullkomnu samræmi við efni frv. eins og það var orðið eftir 2. umr. Hitt allt eru leiðréttingar, þar sem fært er til betra máls og þess háttar.

Ég geri ráð fyrir, að allir séu sammála um, að þetta fari betur, og vænti þess því, að þessar brtt. verði samþ. og frv. verði samþ. til Ed.umr. lokinni.