05.03.1948
Efri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (1500)

45. mál, búfjárrækt

Eiríkur Einarsson:

Þótt ég sé ekki samþykkur öllum hinum einstöku atriðum frv., finnst mér það þó í heild vera svo mikið til bóta og svo mikil viðleitni til eflingar á sviði margvíslegrar menningar, að ég segi já.