15.12.1947
Neðri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (159)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. — Ég vil fyrir hönd ríkisstj. óska þess, að þetta mál verði tekið fyrir á þessum fundi, sem boðaður hefur verið.

Þó að hér sé um nokkuð langan lagabálk að ræða, þá held ég, að við framsögu málsins muni það yfirleitt upplýsast það vel, að hv. þm., sem hafa hugsað mikið um það og rætt það í sambandi við önnur mál, eigi auðvelt með að taka þátt í umr. um það, eftir því sem ástæður eru til.