30.01.1948
Efri deild: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1148 í B-deild Alþingistíðinda. (1739)

142. mál, vátryggingarfélög fyrir fiskiskip

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson):

Herra forseti. Þetta frv. er gamall kunningi hér í deildinni. Þetta félag hefur fengið leyfi til að starfa sjálfstætt, aðallega vegna þess hve gamalt það er, og hefur reynslan virzt sýna, að það stæði sig bezt utan þess kerfis, sem sett er um vátryggingarfélög. — Frv. er óbreytt frá því, sem áður var, nema hvað tímatakmarkið um undanþágu félagsins er tekið út úr því. Ég þarf því ekki að fjölyrða um efni frv. og óska þess, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.