27.02.1948
Neðri deild: 65. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1180 í B-deild Alþingistíðinda. (1856)

67. mál, eignarnám byggingarlóða á Sauðárkróki

Steingrímur Steinþórsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. fjhn. fyrir afgreiðslu á þessu máli, og tel ég hana góða. Ég hef ekkert að athuga við grg. hv. frsm. n., en ég tek undir þau ummæli hv. frsm., að hæstv. forseti sjái um, að þessu máli verði hraðað svo, að það fái afgreiðslu á þessu þingi.