16.12.1947
Neðri deild: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (191)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (BG):

Ég vil upplýsa fyrir d., þó að það sé ekki nauðsynlegt, að þessu hefur ekki verið blandað saman, afbrigðum og möguleika fyrir, að fundi verði frestað til kl. 5, eða í nokkrar klst., heldur sagði ég, að við atkvgr. um afbrigði mundi koma fram, hvort d. vildi láta taka málið fyrir í dag. Sá þátturinn, ósk stjórnarandstöðunnar að vilja fá nokkurn frest til að undirbúa nál. sitt og brtt., er alveg á valdi forseta, hvort fundi er frestað til kl. 5 eða ekki.