11.12.1947
Sameinað þing: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1217 í B-deild Alþingistíðinda. (1992)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Pétur Ottesen:

Ég las í blaði nýlega, að nú væri horfið frá því ráði að gera aðgerðir í Hvalfirði í sambandi við hina væntanlegu Hvalfjarðarferju. Sú frásögn kom flatt upp á mig, að sjá getið um það opinberlega, að hætta ætti við það verk, sem þegar er alllangt á veg komið. Því vil ég spyrja hæstv. samgmrh., hvort hann eða ríkisstj. hafi tekið nokkra ákvörðun, sem hægt sé að byggja á slíka frásögn.