06.02.1948
Neðri deild: 52. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í B-deild Alþingistíðinda. (1996)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Ég er nú að vísu óviðbúinn að svara þessari fyrirspurn hv. þm. Borgf. eins ýtarlega og ég hefði gjarnan viljað, m.a. hef ég ekki athugað. hve mikið hefur verið unnið að framkvæmdum og undirbúningi í sambandi við ferjuna, en ég get þó sagt fyrir mig, að mér er alveg ókunnugt.