20.12.1947
Sameinað þing: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1223 í B-deild Alþingistíðinda. (2008)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Jörundur Brynjólfsson:

Herra forseti. Út af fyrirspurn, sem beint var til allshn., þá vil ég taka fram, að ég ætla að n. hafi tekið þessa till., sem hv. 4. þm. Reykv. talaði um, strax fyrir á næsta fundi, sem hún hélt, eftir að till. var vísað til n., og sendi hana til umsagnar ég held Landssambandi íslenzkra útvegsmanna og stjórn síldarverksmiðja ríkisins. En mér er ekki kunnugt um, að borizt hafi svör við þessu.