17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1230 í B-deild Alþingistíðinda. (2033)

Orlofsfé þingmanna

Sigurður Guðnason:

Ég hef fengið orlofsfé í tvö ár. Það stendur í orlofslögunum, að allir eigi rétt á að fá orlof, og ég geri ráð fyrir, að hv. 4. þm. Reykv. fái orlof frá störfum sínum. Ég hef alltaf fengið orlof fyrir vinnu mína, og mér datt ekki annað í hug en að krefjast míns orlofsfjár hér, og ég skammast mín ekkert fyrir það.