16.12.1947
Neðri deild: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 161 í B-deild Alþingistíðinda. (205)
116. mál, dýrtíðarráðstafanir
Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. — Þetta er í annað skiptið á tveimur dögum, sem það kemur fyrir, að stjórnarliðið ætlar að skera niður umr. Hæstv. stjórn hefur ekki gefið neinar upplýsingar um, hvers gagns megi vænta af þessu frv. Hún hefur brugðizt öllum skyldum gagnvart Alþingi að gefa mönnum upplýsingar um það, sem þeir hafa spurt um. Í stað þess hefur hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh. látið hafa sig til þess að koma með stórlygar á einstaka menn í sínum ræðum, til þess að hægt sé að gera slíkar lygar að stórfyrirsögnum í Morgunblaðinu daginn eftir. Svo þegar þm. hafa rétt til að halda tvær ræður með fullum ræðutíma og frsm. þrjár, þá skera þeir niður umr., eftir að viðkomandi ráðh. hafa talað og borið sínar lygar fram. Þetta er hreint ofbeldi og ekkert annað. Þingsköp ætlast til þess, að tvær nætur líði frá því, að frv. kemur fram, þar til má taka það til umr., og tvær nætur milli umr., enn fremur, að Frsm. hafi rétt til að halda þrjár ræður og aðrir þm. tvær. Þetta er gert til að tryggja, að tími vinnist til að athuga frv., og tryggja málfrelsi þm. Með þessari aðferð, sem hér er verið að beita, er verið að brjóta anda þingskapa. Það er verið að hagnýta sérstakt tilefni, sem hægt er að nota, kannske með teygjanlegu móti, ef umr. hafa dregizt úr hófi fram, og það verður ekki sagt, að hér hafi verið, annað eins stórmál og þetta er. Þess vegna vil ég algerlega mótmæla þessari aðferð. Ég vil vekja athygli þeirra hv. þm., sem greiða atkv. með þessari aðferð, á því, að hér er verið að innleiða nýjan praxís, sem ekki hefur tíðkazt fram að þessu. Hér er verið að riða niður þann rétt, sem þm. er veittur samkvæmt stjórnarskrá og l. Þess vegna vil ég alveg mótmæla þessari till., sem hér er komin fram.