14.11.1947
Efri deild: 19. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (2052)

Minning Einars Árnasonar

forseti (BSt):

Eins og yður, hv. þm. í Ed., er kunnugt, hefur sá sorgaratburður gerzt, að Einar Árnason á Eyrarlandi andaðist snögglega á heimili sínu í morgun. Þessa gagnmerka manns, sem m.a. var um mörg ár forseti þessarar d., verður minnzt á sérstökum þingfundi síðar í dag, en vegna þessa atburðar verður ekki gengið til dagskrár nú og dagskrármálið tekið út af dagskrá.