24.03.1948
Sameinað þing: 64. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (2091)

Þinglausnir

Forseti (JPálm):

Ég vil þakka hv. 2. þm. Reykv. fyrir þakkarorðin og óskir í minn garð og öðrum hv. þm. fyrir undirtektir undir það.

Forseti Íslands (Sveinn Björnsson): Í ríkisráði 22. þ. m. var gefið út svolátandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég hef ákveðið, að Alþingi, 67. löggjafarþingi, skuli slítið miðvikudaginn 24. marz 1948. Mun ég því slíta Alþingi þann dag.

Gert í Reykjavík 23. marz 1848.

Sveinn Björnsson

Stefán Jóh. Stefánsson.

Forsetabréf um þinglausnir.“

Samkvæmt bréfi því, er ég hef nú lesið, segi ég þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum sinum, slitið. Um leið og ég óska þingmönnum velfarnaðar, vil ég biðja þá að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Stefán Jóh. Stefánsson, mælti: „Lifi Ísland“. Þingmenn tóku undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.