02.12.1947
Neðri deild: 25. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (2115)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Formaður fjhn. er nú ekki viðstaddur, en ég vil gefa þær upplýsingar, að á síðasta fundi fjhn. var málið rætt, en svo er málum háttað, að form. fjhn. var fjarverandi framan af þingi, og var afgreiðslu málsins því frestað, svo að hann gæti kynnt sér málið, og verður þess nú ekki langt að bíða, að það verði afgr.