09.03.1948
Neðri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í C-deild Alþingistíðinda. (2141)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Forseti (BG) :

Eins og ég gat um áðan, eru vandkvæði á þessu — hér er um deilumál að ræða, klofna n. — nema tryggt sé, að allir þdm. hafi fengið að vita, að atkvgr. fari fram. og það verður naumast tryggt með öðru móti en gefin verði út prentuð dagskrá, og get ég ekki séð, að málinu geti stafað nein hætta af því, þó að þessi atkvgr. fari fram nokkru síðar. t. d. kl. 3 á morgun, þegar búið er að koma út prentaðri dagskrá.