27.02.1948
Efri deild: 70. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 85 í C-deild Alþingistíðinda. (2208)

38. mál, iðnaðarmálastjóri og framleiðsluráð

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég vildi aðeins láta hæstv. forseta vita það, að hv. 1. þm. Reykv., sem ekki er við, hefur beðið mig að láta sig vita, er atkv. yrðu greidd um þetta mál. Hann er nú einn bankastjóri Landsbankans, þar sem hinir bankastjórarnir eru erlendis. og mun því ef til vill ekki hafa getað fylgzt með umr.