30.01.1948
Neðri deild: 49. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 98 í C-deild Alþingistíðinda. (2239)

7. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Hermann Guðmundsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ísaf. og form. sjútvn. fyrir svarið við fyrirspurn minni. Hvað við kemur fjarvist hv. þm. Siglf., þá get ég upplýst, að það hefur verið búizt við honum á hverjum degi, og á ég bágt með að skilja, að hann muni tefja mál það, sem ég spurði um, né önnur mál, sem fyrir hv. sjútvn. liggja.