22.03.1948
Efri deild: 84. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í C-deild Alþingistíðinda. (2293)

76. mál, ríkisborgararéttur

Forseti (BSt) :

Hv. dm. hljóta að sjá, að hér er orðinn mjög naumur tími til að koma þessu máli fram, en hins vegar hafa margir þm. mjög mikinn áhuga á því. Ég mun þó taka málið af dagskrá nú, ef ekki koma fram andmæli gegn því, en hafa það á dagskrá á morgun, því að enn er ekki útilokað, að það gæti náð fram að ganga, ef samkomulag næðist um það.