13.11.1947
Neðri deild: 17. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 216 í C-deild Alþingistíðinda. (2365)

59. mál, ölgerð og sölumeðferð öls

Forseti (BG) :

Út af ummælum hv. 6. þm. Reykv. vil ég taka fram, að ég tel rétt, þegar óskir þm. ganga í gagnstæðar áttir um fundarhald, að þá sé þd. gjarnan látin skera úr a. m. k. þegar svo stendur á sem hér hefur verið, að nauðsynlegt hefur verið að hafa þingfundi á óvenjulegum tíma, og er hv. 6. þm. Reykv. vel kunnugt um orsakirnar til þess.