18.11.1947
Neðri deild: 20. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (2436)
83. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Helgi Jónasson:
Það eru aðeins örfá orð, herra forseti. — Ég stend ekki upp til þess að andmæla þessu frv. Ég get skilið það, að hv. flm. þess finni nauðsyn á því að fá brú yfir þetta vatnsfall, sem Jökulsá í Lóni er, sem slítur í sundur samgöngur í stóru og þéttbyggðu héraði. En vitanlega þarf að brúa fleiri ár en þetta stórfljót.
Samkv. þessum l., sem hér er lagt til að framlengja, hefur brúin á Jökulsá á Fjöllum verið byggð og ég sé ekki, að sjálfsagt sé að Austfirðingafjórðungur eigi að hafa sérréttindi um að fá fé úr brúasjóði fremur en aðrir landsfjórðungar. Og ég þakka hæstv. samgmrh. ummæli hans um byggingu Þjórsárbrúarinnar, sem hann taldi í fyrstu röð þeirra brúa, sem reisa þyrfti á næstunni. Það orkar ekki tvímælis, að nú er brúargerð á Þjórsá sú brúargerð, sem kallar mest að. Þjórsá er stærsta og vatnsmesta á landsins og alls staðar ófær milli fjalls og fjöru, og sú brú, sem nú er á þeirri á og er yfir hálfrar aldar gömul, er orðin mjög hrörleg, svo að stórhættulegt er um hana að fara. Og það er því stórhættulegt að draga lengur að byggja brú á Þjórsá, enda er nú búið að panta frá Englandi efni til þessarar brúar. Vonandi verður bygging hennar hafin á næsta vori. Nú er fyrir hendi heimild til þess að kaupa efni til þessarar brúargerðar fyrir 700 þús. kr. Sú heimild hefur verið notuð, og er það vel farið. Ég veit ekki, hvort það er beint meiningin að byggja Þjórsárbrúna fyrir fé úr brúasjóði, þó að þurft geti að grípa til þess.
Það er nauðsynlegt að byggja brú á Hvítá hjá Iðu, en ég þakka hv. 1. þm. Árn. (JörB) fyrir, að hann hefur fullan skilning á því að Þjórsárbrúin verður að koma fyrst af öllum brúm, sem byggðar verða á næstunni, verður að koma á næsta ári, eftir hvaða leiðum svo sem fé er aflað til þess að byggja hana, hvort tekið verður lán til þess eða hún verður byggð fyrir fé, sem lagt sé fram beint úr ríkissjóði. En eins og ástatt er nú í þessu landi, get ég búizt við, að taka verði eitthvað af fé úr brúasjóði til þess að byggja fyrir Þjórsárbrúna.