12.02.1948
Neðri deild: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í C-deild Alþingistíðinda. (2466)

93. mál, útrýming villiminka

Steingrímur Steinþórsson:

Út af þessari fyrirspurn hv. 1. þm. Árn. skal ég geta þess, að þetta frv. verður afgr. nú alveg næstu daga. N. hefur leitað umsagnar margra aðila um þetta mál, og hafa margar umsagnir komið fram um það og þetta mál er þess eðlis, að það þarf að athuga það frá ýmsum hliðum, en hins vegar get ég lofað því fyrir hönd landbn., að afgreiðsla málsins dragist ekki úr þessu nema örfáa daga. En það er ekkert einsdæmi, að það dragist að afgreiða mál eins og þetta. Vil ég vænta þess, að í þeim n., þar sem hv. 1. þm. Árn. ræður, þar sé ekki hægt að finna dæmi um það, að mál hafi verið óafgreitt eins lengi og þetta mál.