18.03.1948
Neðri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2514)
93. mál, útrýming villiminka
Jörundur Brynjólfsson:
Ég kann því illa, að hæstv. ráðh. skuli sækja þetta með svo miklu kappi, þegar forseti er búinn að bera það undir þm., hvort eigi megi hafa þennan hátt á, enda ekkert óalgengt, að slík skilgreining eigi sér stað og fullkomlega samkv. þingsköpum, að forseti ráði atkvgr. Forseti tók þetta þó ekki upp hjá sjálfum sér, heldur bar það undir hv. landbn., hvort hún hefði nokkuð við slíka atkvgr. að athuga.