18.03.1948
Neðri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2515)

93. mál, útrýming villiminka

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson) :

Ég skal viðurkenna. að þegar ósk kom frá hv. þm. Borgf. um, að þessi háttur yrði á hafður, gaf ég samþykki mitt til, að forseti úrskurðaði, hvernig atkvgr. yrði háttað. Ég efa þó mjög, að að öðru leyti sé hér farið að samkvæmt þingsköpum. Ég vildi því beina því til hv. forseta, hvort ekki megi endurtaka atkvgr. (PO: Nú er búið að lýsa atkvgr.). Það er ekki búið varðandi lögin sjálf.