28.11.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í C-deild Alþingistíðinda. (2522)
94. mál, dýrtíðarráðstafanir
Einar Olgeirsson:
Ég vil leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvernig stendur á því, að fundur skuli vera haldinn í sameinuðu þingi í dag, en ekki í deildum. Þetta er þriðji dagurinn í röð, sem fundur er í sameinuðu þingi, en ekki í deildum, meðan mjög mikilsvarðandi verkefni bíða afgreiðslu í hv. Nd. Það er vitanlegt, að þingið hefur nú beðið í tæpa tvo mánuði eftir því, að eitthvað kæmi frá ríkisstj. um dýrtíðarmálin. En ekkert bólar á slíku enn þá. Þykir þjóðinni þetta löng bið. Hins vegar höfum við þm. Sósfl. lagt fram í hv. Nd. frv. um dýrtíðarmálin. Og við höfðum búizt við því, að þegar frv. væri komið fram um þetta mál, mundi það þegar verða tekið fyrir samkv. þingræðislegum reglum. Ég átti tal við hæstv. forseta, og ég hafði heyrt, að neðrideildarfundur yrði á föstudag. Ég talaði við hæstv. forseta Sþ., og sagði hann, að hann mundi síður en svo sækjast eftir að hafa fund á föstudag, þ. e. í dag. Hins vegar tók hæstv. forseti neðri deildar vel í að hafa fund þennan dag í þeirri hv. d. Nú er sú breyt. orðin á, að aðeins er boðað til fundar í Sþ. í dag og á að halda áfram með málin, sem í Sþ. voru á dagskrá í gær. Og með allri virðingu fyrir þeim málum og þeim hv. þm., sem flytja þau, þá held ég, að þinginu væri þarfara, þegar komið er fram frv. um dýrtíðarmálin að ræða það, fremur en að hafa umr. um mál eins og áttu sér stað í gær, þinginu til lítils sóma. — Ég vil spyrja um, hvort hæstv. ríkisstj. sé farin að grípa þannig inn í, að hún hindri, að slík mál sem frv. um dýrtíðarmálin verði rædd, þegar þau koma fram. Ég álít æskilegt fyrir þing og þjóð að fá upplýsingar um, hvernig á þessu stendur.