28.11.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í C-deild Alþingistíðinda. (2523)

94. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (JPálm) :

Út af þessu vil ég taka fram, að dagskrá fundar sameinaðs þings komst miklu skemur áfram í gær en ég hafði búizt við. Hins vegar komst ég að því, að ekki var áhugi fyrir því að hafa fundi í deildum í dag. Þess vegna vildi ég hafa fund í sameinuðu þingi. — Varðandi frv. það, sem hv. 2. þm. Reykv. talaði um, þá liggur það ekki fyrir í Sþ. Og ég ræð því ekki, hvenær fundir eru haldnir í deildum.