15.12.1947
Neðri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 446 í C-deild Alþingistíðinda. (2583)

109. mál, stríðsgróðaskattur

forseti (BG):

Út af ósk hv. þm. N-Ísf. í lok síðasta fundar um. að frv., sem hann flytur á þskj. 168 um breyt. á l. nr. 21 20. maí 1942. um stríðsgróðaskatt, og vísað var á þeim fundi til 2. umr. og n., verði á ný tekið til 1. umr. vegna þeirra mistaka, sem á urðu, að frv. var tekið til meðferðar í fjarveru flm. og látið ganga áfram umræðulaust, vil ég taka það fram, að ég tel ekki fært eins og komið er að verða við þeirri ósk að láta málið aftur koma til 1. umr. Hins vegar sé ég ekkert því til fyrirstöðu að leyfa hv. flm. að taka fyrstum til máls. þegar málið kemur til umr.