15.03.1948
Neðri deild: 73. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í C-deild Alþingistíðinda. (2594)

121. mál, Reykjavíkurhöfn

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Það er enginn frsm. sjútvn. til í þessu máli, því að það hefur ekki enn verið afgr. frá n. Annað mál er það, að er sjútvn. afgreiddi málið á sínum tíma, vildi enginn nm. mæla með framgangi þess. En frá Reykjavíkurbæ er áhugi fyrir hendi að koma þessu frv. í gegnum þingið, en það hefur verið rætt um það að setja ákvæði þessa frv. inn í hin almennu hafnarlög, sem nú eru til 2. umr. í hv. Ed., og hefur sjútvn. mælt með því. Ég mæli ekki með því, að frv. þetta gangi áfram, en ég mun í umr. um frv. í sjútvn. og hér í hv. þd. gera grein fyrir málinu. Það verður næstu daga.