15.03.1948
Neðri deild: 73. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í C-deild Alþingistíðinda. (2595)

121. mál, Reykjavíkurhöfn

Gunnar Thoroddsen:

Herra forseti. Þegar mál þetta var til umr. í sjútvn., lenti það saman við annað mál. Hv. þm. Siglf. hafði framsögu í málinu, en þar sem hann er ekki mættur, tel ég eðlilegt að fresta umr. þar til við 3. umr. Ég skal ekki karpa við hv. þm. Ísaf., en ég skil ekki. hversu mikinn áhuga hann hefur fyrir því að drepa þetta mál strax.