02.03.1948
Efri deild: 72. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 543 í C-deild Alþingistíðinda. (2741)

62. mál, menntaskólar

Forseti (BSt) :

Það hefur enginn hv. þdm. beðið um fjarvistarleyfi nema hæstv. dómsmrh. Og samkv. upphafi 33. gr. þingskapa ber hv. þm. að vera við atkvgr., nema þeir hafi fjarvistarleyfi. Þó mun ég verða við þessari ósk um stund að fresta atkvgr. En þessi atkvgr. fer fram áður en fundi lýkur eða er frestað, ef honum verður frestað.