08.03.1948
Efri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 546 í C-deild Alþingistíðinda. (2749)

62. mál, menntaskólar

Forseti (Bst) :

Ég vil taka það fram, að sem form. menntmn. mun ég óska eftir því, að umr. verði ekki alveg lokið nú um málið, svo að menntmn. geti aðeins athugað nýjar brtt., sem fram hafa komið síðan n. hafði málið til meðferðar, þ. e. varatill, hæstv. ráðh. og þá skriflegu brtt., sem nú var lýst. Ég tel því réttara fyrir þá, sem ræða málið nú eitthvað áfram, að tala sig ekki alveg dauða, ef þeir mundu þurfa að taka til máls við framhald umr.