19.02.1948
Efri deild: 65. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 576 í C-deild Alþingistíðinda. (2787)

66. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Fjmrh. (Jóhann Jósefsson) :

Þar sem mér er kunnugt um, að lánsfjáröflun til landshafnarinnar í Njarðvíkum og Keflavík hefur þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir engan árangur borið, og þær framkvæmdir, sem þar hafa farið fram, hefur ríkissjóður orðið að bera uppi einsamall, þá sé ég ekki, að það hafi hina minnstu þýðingu að vera að binda ríkissjóði fleiri slíka bagga eins og hér er stefnt að með þessu frv., og þegar af þeirri ástæðu get ég ekki fylgt því og segi því nei.

2.–16. gr. samþ. með 9:3 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 10:4 atkv.