04.03.1948
Efri deild: 74. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 608 í C-deild Alþingistíðinda. (2837)

73. mál, bindindisstarfsemi

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins leyfa mér að mótmæla þeim ásökunum, sem hæstv. dómsmrh. hefur borið á mig, að ég sé á móti bindindisstarfsemi í landinu. Ég veit ekki, hvaðan hann hefur heimild til að fullyrða slíkt. Ég mun tala um þetta við hæstv. dómsmrh. við 3. umr. (HV: Tala um fyrir honum).