10.12.1947
Efri deild: 30. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 612 í C-deild Alþingistíðinda. (2845)

104. mál, sölugjald af jörðum

Forseti (BSt) :

Ég get ekki séð, að það sé andstætt þingsköpum, að frv. sé vísað til annarrar n. Komi till. fram um það, mun ég því bera hana upp. (GJ) : Ég hef gert það að till. minni). Þá mun ég bera till. upp. Þetta er að vísu óvenjulegt, því að venjan er að vísa málum til þeirra n., sem hafa undirbúið þau. Samkvæmt eðli málsins má þó eins vísa því til fjhn. og landbn. Deildin verður að afgera þetta.