20.12.1947
Efri deild: 43. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (289)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Eiríkur Einarsson:

Þetta er alveg nýstárlegt hér á Alþ., að það sé verið að flokka í sundur, hverjir megi vera hámarksvextir af lánum til aðila til lands og sjávar. Og þangað til þetta skýrist betur, segi ég nei við þessu.