22.03.1948
Efri deild: 84. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 710 í C-deild Alþingistíðinda. (2990)

194. mál, menningarsjóður

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég vil ákveðið óska þess, að frv. verði vísað til n. og hún athugi málið. Því er lýst yfir af hv. frsm., að það sé flutt af n. eftir beiðni hæstv. ráðh., án þess að n. hafi athugað það. Ég geri því ákveðið þá till., að málinu verði vísað til n. og hún taki það til athugunar.