01.10.1947
Sameinað þing: 0. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (3)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

3. kjördeild hefur rannsakað kjörbréf hins nýja þm. V.-Sk., Jóns Gíslasonar, og hefur ekki fundið neitt við það að athuga. Leggur hún því til, að kosning hans verði tekin gild.