20.12.1947
Neðri deild: 40. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (301)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Sigurður Bjarnason:

Ég hef litla trú á því, að ráðstafanir þær, sem þetta frv. gerir ráð fyrir, muni hafa þau áhrif, að dýrtíðin í landinu lækki og aðstaða atvinnuveganna hafni. Ég tel þó felast í því tilraun til þess að stíga spor í rétta átt og segi því já.