04.02.1948
Sameinað þing: 41. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í D-deild Alþingistíðinda. (3046)

44. mál, ljóskastarar í skipum o.fl.

Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson) :

Herra forseti. Allshn. hefur athugað þessa till. og sent hana til umsagnar þremur landssamböndum, sem öll samkvæmt eðli sínu hljóta að fá þessi mál. þ. e. Fiskifélags Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandsins og Landssambands ísl. útvegsmanna. Fiskifélag Íslands og Farmanna- og fiskimannasambandið voru því meðmælt, að samþ. yrði till. til þál. um ljóskastara í skipum, en svar hefur ekki borizt frá L. Í. Ú. Leggur allshn. því til, að till. verði samþ. óbreytt.