05.11.1947
Sameinað þing: 18. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í D-deild Alþingistíðinda. (3072)
35. mál, hlutafélög, verzlunarskrár, firmu og prókúruumboð
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Aðeins nokkur orð út af þeirri aðferð hv. 4. þm. Reykv. að flytja till. til þál. um að skora á ríkisstj. að láta endurskoða lög án þess að geta ástæðna eða færa rök fyrir, að hvaða leyti slík endurskoðun sé nauðsynleg. Með þessu vildi ég ekki segja, að endurskoðun sú, sem hv. 4. þm. Reykv. talaði um, sé óþörf, en bendi aðeins á, að hann gat engra sérstakra ástæðna fyrir nauðsyn slíkrar endurskoðunar, en æskilegt væri, að slíkar ástæður kæmu fram þegar. Og það, að endurskoða þurfi lög með vissu árabili, það fær náttúrlega ekki staðizt. Sum lög standa marga áratugi, önnur aðeins stutta stund, allt eftir efni og innihaldi, og það er réttara að koma till. sínum á framfæri við ríkisstj. heldur en mælast til þess, að þingið álykti að endurskoða beri lög, án þess að ástæðna til þess sé getið.