17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í D-deild Alþingistíðinda. (3152)
39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis
Menntmrh. (Eysteinn Jónsson) :
Herra forseti. Ég ætlaði bara að benda á það, að ég hygg, að hv. þm. Barð. hafi misskilið það, sem ég sagði um málið hér um daginn. Í fyrsta lagi er það, að það samkomulag, sem ég skýrði frá, að orðið hefði milli menntamálaráðs og viðskiptan. um þessi efni, það er einvörðungu rammi fyrir samstarf þessara stofnana, en nær ekki til þess að svo komnu, hvað mikil yfirfærsla fer handa hverjum námsmanni í hverju landi, og ég álit mitt hlutverk í þessu að koma á sem beztri samvinnu milli menntamálaráðs og viðskiptan. En ástæðan til þess, að hv. þm. Barð. er sífellt að tala um, að ég taki illa í, að yfirfærður verði nægilegur framfærslueyrir fyrir fjölskyldumenn, er sjálfsagt sú, þegar hann spurði, hvort ég gæti tryggt, að nægilegur gjaldeyrir yrði yfirfærður, þá vildi ég ekki gefa ákveðna yfirlýsingu um efni, sem ég vissi ekki, hvort ég gæti staðið við. Vegna þess að ef ég færi að tala um að koma því í kring, þá mundi hv. þm. Barð. telja það vilyrði, sem ég gæti svo kannske ekki komið í framkvæmd. Þess vegna gat ég ekki lýst yfir neinu um það, því að það er ekki á mínu valdi að ákveða um það. Það er ekkert um þetta atriði í þessum reglum og heldur ekkert í þeim, sem útilokar það, að tekið sé tillit til þess, ef námsmaður hefur fyrir fjölskyldu að sjá. Og ég hefði haldið, að með því að samþykkja brtt. 434 eða dagskrártill. væri bezt séð fyrir afgreiðslu málsins, en síður, ef brtt. hv. þm. Barð. verður samþ., en það er vegna þess, að ef hún verður samþ., lofar hún meiru en gjaldeyrisyfirvöldin kannske sæju sér fært að standa við og kannske gefur mönnum það í skyn, að undir öllum kringumstæðum væri eðlilegt að yfirfæra ekki aðeins fyrir námsmenn, heldur líka fyrir fjölskyldur. Ég held þess vegna, að það sé heppilegt að samþykkja brtt. 434 eða dagskrána, en mun að öðru leyti ekki skipta mér frekar af þessu máli.