24.03.1948
Sameinað þing: 62. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í D-deild Alþingistíðinda. (3209)

185. mál, skipting innflutnings- og gjaldeyrisleyfa milli landshluta

Bjarni Benediktsson:

Þar sem fram hefur komið og ekki verið véfengt, að síðari liðir till. stangast við gildandi lög, tel ég till. rangt fram komna, og hefði forseti átt að vísa henni frá. En þar sem hann hefur ekki treyst sér til þess, vil ég þó ekki blanda mér í svo ólöglegt athæfi og sit því hjá.