14.10.1947
Sameinað þing: 6. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 137 í D-deild Alþingistíðinda. (3253)

5. mál, Parísarráðstefnan og dollaralán

Forseti (BSt) :

Hæstv. forsrh. lauk máli sínu, og er þar með lokið fyrri umferð, og hefst nú hin síðari. — Það hefur verið venja að draga af flokkunum í seinni umferð það, sem þeir hafa notað of mikinn tíma í fyrri umferð. Hins vegar mun það aldrei hafa komið fyrir, að flokkur ætti inni, eins og nú hefur komið fyrir, og hefur verið litið svo á, að í seinni umferð gæti flokkur ekki átt eftir þann ræðutíma, sem hann átti að hafa í fyrri umferð. Þó lýsi ég því yfir, að ég mun taka nokkurt tillit til þess, hve Sósíalistaflokkurinn notaði lítið af tíma sínum í fyrri umferð.

Tekur nú til máls hv. 2. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, og talar af hálfu Sameiningarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins.